Við erum Silja María & Ársæll Örn Kjartansbörn


Færslur: 2006 Nóvember

27.11.2006 11:57

Silja Stóra :)

Silja María er orðin rosalega dugleg að sitja eins og sést á myndinni hér fyrir ofan. Hún er líka búin að þróa með sér tungutrix hehe... Hún getur snúið upp á tunguna í sér . Hvorki ég né pabbi hennar getum þetta en komumst að því að Erla frænka hefur greinilega verið að kenna henni þetta og eru nokkrar myndir til af þessu. Hún er líka byrjuð að fara út um allt á teppinu sínu sem nær yfir hálft stofugólfið og er oftar en ekki komin út af því. Hún er strax byrjuð að tæta úr hillunum hjá okkur og komst í playstation tölvuna hans pabba síns um daginn og fannst það mjög spennandi .

Tvö ný myndaalbúm komin inn...

bæb

22.11.2006 14:02

Silja María undrabarn ;)

Jæja þá eru það nýjustu fréttir að Silja María er byrjuð að lesa...

Nei bara smá djók hehehe....hún er bara svo fyndin með þessa bók. Ótrúlegt hvað þessir stubbar eru alltaf vinsælir, hún skríkir alltaf þegar hún sér þá, voðalega fyndnir . En daman var í skoðun í morgun og er orðin 68cm og 7190g. Hún er búin að vera með niðurgang í nokkra daga og oft á dag þannig að hún hefur ekki þyngst mikið . Hún kvartar ekkert yfir þessu litli engillinn en er orðin ansi rauð á bossanum. Svo er enn þá að koma upp úr henni en við eigum víst ekki að hafa áhyggjur, þetta er bara eitthvað tímabil sem gegnur vonandi fljótlega yfir. Svo fékk hún sprautu og fór smá að gráta en var fljót að jafna sig. Silja María er mikið búin að vera í pössun hjá ömmu sinni og afa á Kvisthaganum svo að ég nái að klára þetta blessaða lokaverkefni. Á að skila í næstu viku og get ekki beðið. Þá er bara vörnin eftir 7. des og þá er þetta sem betur fer búið og mamman getur aftur farið að knúsa litlu stelpuna sína.....

Nýjar myndir komnar inn

bæb

15.11.2006 12:38

Silja Svaðalega hehe..

Silja María er orðin svaðaleg í sundinu og er til í hvað sem er hehehe... þessar tvær myndir voru teknar í sundinu í gær og ég varð að setja þær inn því þær eru nú fyndnari kantinum . Annars er komið nýtt albúm með fullt af skemmtilegum myndum úr sundinu og fl.

12.11.2006 11:23

6 mánaða prinsessa :)

Jæja þá er prinsessan á bænum orðin 6 mánaða og komið ár síðan við Kjartan giftum okkur . Tíminn er sko fljótur að líða. Svo er það að frétta að Silja María byrjaði að skríða í gær hehe... Sú litla tók sig til og skreið eftir dúkkunni sem amma Lella var nýbúin að kaupa handa henni. Hún gerði það með því að halla sér yfir á hægri hliðina, beygja hægri fót og ýta sér áfram. Svo hallaði hún sér yfir á vinstri hliðina og gerði hið sama. Nú þarf að fara að gera heimilið barnvænt hehe...Við erum líka byrjuð að gefa henni stoðmjólk. Hún er nú ekki alveg að fíla það en það kemur örugglega. Það eina sem er ekki gott er að ælurnar hennar verða soldið illa lyktandi út af mjólkinni en vonandi fer hún að hætta þessu ælustandi fljótlega.

Var líka að setja inn nokkrar myndir

Bless í bili

07.11.2006 08:07

Nýtt myndaalbúm

Jæja gott fólk... myndaæðið á Leirubakkanum heldur áfram og við Kristín búin að setja inn fyrsta myndaalbúm nóvembermánaðar (Enda ekki seinna vænna kominn 7. nóv ).

Myndirnar tala sínu máli...

 

Að lokum er það spurning um smá óformlega könnun... ef að barnið þitt segir "a*fruss*bbb*meira fruss*iiííí" meinar það ekki alveg örugglega pabbi? Jafnvel þótt að á heilli kvöldstund þá endurtaki það ekki orðið? Þótt að pabbinn sitji og segi aftur og aftur (og aftur og aftur) "Pabbi" við það?

 

Endilega viðrið ykkar skoðanir um málið?

  • 1
Flettingar í dag: 171
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 13
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 45773
Samtals gestir: 13521
Tölur uppfærðar: 18.5.2024 08:35:44


Um mig

Nafn:

Silja María & Ársæll Örn

Afmælisdagur:

12. maí 2006 og 13. apríl 2009

Faðir:

Kjartan Ársælsson

Móðir:

Kristín Ósk Rúnarsdóttir

Um:

Draumabörn í alla staði

Tenglar

Eldra efni