Rambó leikfélaganna er mættur á svæðið. Með barn í hrútsmerkinu mega
foreldrar búast við miklu fjöri á heimilinu því það ríkir engin
lognmolla í kringum hrútinn. Ekki ætlast til þess að barnið sitji kyrrt
með hringlu. Þetta er barnið sem veifar þér ofan af hæsta tré, alls
óhrætt við að taka áhættu. Hrútsbarnið er allt annað en hljóðlátt og
lætur oft vel í sér heyra.
Sem eldsmerki er hrúturinn orkumikill og
hefur ávallt eitthvað fyrir stafni. Verður erfitt að ráða við litla
hrúta? Það er líklegra en ekki. Foreldrar ættu eins fljótt og hægt er
að kenna þessu barni að vinna með öðrum börnum. Að deila einhverju með
öðrum er eitthvað sem kemur ekki af sjálfu sér - það þarf að kenna
litlum hrútum. Þeir eru einnig ákaflega tapsárir. Þeir þrá athygli og
eiga mjög auðvelt með að verða sér úti um hana með ýmsum aðferðum.
Hrútar eru fæddir leiðtogar og ef þú ætlar að hafa eitthvað að segja er
betra að láta þá vita með afgerandi hætti hver er við stjórnvölinn því
annars er eins líklegt að stjórnin verði tekin úr þínum höndum.
Lítill
hrútur er oft eins og ótemja, lítið gefinn fyrir að hlýða reglum og
vera þægur nema þegar honum hentar. Vegna þess hve hann er orkumikill
er nauðsynlegt að hann fái mikla hreyfingu. Hann verður að fá að hlaupa
um og róta til heima hjá sér. Ef hann fær ekki útrás fyrir orkuna
verður hann pirraður og ergilegur. Honum líður best í lifandi og
fjörugu umhverfi. Þar sem fljótfærni og óþolinmæði eru meðal veikleika
hans þarf að kenna honum að hægja á sér og telja upp að tíu áður en
hann rýkur af stað. Einnig þarf að venja hann á að ljúka því sem hann
byrjar á.