Við erum Silja María & Ársæll Örn Kjartansbörn


Dagmamma

Þann 2. maí 2007 byrjaði ég hjá dagmömmu. Hún heitir Sigurborg, kölluð Bogga og býr í Kópavogi. Aðlögunin gekk rosalega vel og vildi ég ekkert vera að kyssa mömmu og pabba bless heldur bara loka hurðinni. Ég vildi bara strax fara og leika við hina krakkana og skoða allt nýja flotta dótið. Mér finnst rosalega gaman hjá Boggu og þá sérstaklega þegar við förum út, sem er nánast á hverjum degi. Þá förum við oftast í göngutúr eða leikum úti í garði. Þegar ég byrjaði hjá Boggu var ég yngst en núna í ágúst eru tvö börn hætt og tvö ný byrjuð þannig að ég er í miðjunni. Yngst er Iðunn Ösp en hún verður 1 árs í september, Styrmir varð 1 árs í júni, svo ég, Sölvi verður 2 ára í desember og Magdalena varð 2 ára í apríl. 

Núna er komin janúar 2008 og er ég orðin elst hjá Boggu og búin að vera það í smá tíma. Styrmir og Iðunn eru líka enn hjá Boggu en nýju krakkarnir eru Össur og Kristín Gyða sem var aðeins 6 mánaða þegar hún byrjaði. Mér finnst hún voðalega sæt og vildi fyrst leika með hana eins og dúkku. En núna er ég rosalega góð við hana og rétti henni stundum dót þar sem hún getur ekki náð í það sjálf.

Bogga veiktist skyndilega í febrúar 2008 og ég þurfti því að hætta hjá henni. Engin dagmamma var á lausu í Kópavogi og ekkert leikskólapláss að fá. Pabbi gerði því allt vitlaust í stjórnsýslunni hjá Kópavogi og endaði á fundi með þáverandi bæjarstjóra, Gunnari I Birgissyni, því fyrir lá að annað okkar þyrfti að hætta vinna til að vera heima með mér. Til að gera langa sögu stutta þá fékk ég pláss á heilsuleikskólanum Urðarhóli og byrjaði þar í aðlögun 12. mars, en meira um það í "Leikskólar"
Flettingar í dag: 205
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 13
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 45807
Samtals gestir: 13522
Tölur uppfærðar: 18.5.2024 09:15:14


Um mig

Nafn:

Silja María & Ársæll Örn

Afmælisdagur:

12. maí 2006 og 13. apríl 2009

Faðir:

Kjartan Ársælsson

Móðir:

Kristín Ósk Rúnarsdóttir

Um:

Draumabörn í alla staði

Tenglar