Við erum Silja María & Ársæll Örn Kjartansbörn


Skírnin

 

Ég var skírð þann 31. maí 2006 heima hjá ömmu Maju og afa Rúnari að Víkurbakka 28. Þá var ég aðeins 19 daga gömul en ástæðurnar fyrir því að mamma og pabbi völdu þennan dag eru margar. Það vill svo til að bæði mamma og pabbi eru líka skírð 31. maí, mamma ´79 og pabbi ´81. Einnig á langafi afmæli þennan dag og amma Maja og afi Rúnar eiga brúðkaupsafmæli. Þetta er sem sagt stór dagur í okkar fjölskyldu.

 

Skírnin var á miðvikudegi og byrjaði kl: 17. Mamma og pabbi buðu öllum helstu vinum sínum og nánustu ættingjum. Alls voru boðnir 57 gestir en þar sem margir voru erlendis voru 40 manns veislunni. Presturinn sem skírði mig heitir Sr. Sigurður Grétar Helgason sóknarprestur í Seltjarnarneskirkju og er sá sami og gifti mömmu og pabba. Mamma og pabbi vissu ekki hvort ég var strákur eða stelpa en höfðu það alltaf á tilfinningunni að ég væri stelpa. Þegar mamma var komin 2 mánuði á leið ákváðu þau að ef ég væri stelpa ætti ég að heita Silja María. Það er í höfuðið á ömmum mínum og þeim fannst það líka mjög fallegt nafn. Hvað varðar strákanafn þá var það voðalega lítið rætt því þau voru svo viss um að ég væri stelpa . Skírnarvottar voru amma Lella og amma Maja en í því felst meðal annars að fara með mig í sunnudagaskóla . Mamma hélt á mér undir skírn en skírnaskálin sem var notuð er um 130 ára gömul rosalega falleg silfurskál sem langalangamma Ida átti. Ég var voðalega ánægð með nafnið mitt og skírnina og svaf alla athöfnina og veisluna. Skírnakjóllinn sem ég var í er 90 ára gamall og sá sem Magnús, afi hans pabba, skírðist í. Hann er mjög vel með farinn og mamma setti bara bleika slaufu á hann fyrir mig. Athöfnin var stutt og laggóð og heppnaðist vel í alla staði.

 

Mamma og pabbi buðu upp á mikið af góðum veitingum eins og rosalega góða skírnartertu og fleira. Ég fékk líka rosalega mikið af flottum gjöfum eins og silfurkross sem amma Lella fékk sjálf í skírnargjöf, armband til að áletra, skartgripaskrín, matarstell, gríslapúða, risabangsa, bursta og greiðu, biblíu, fullt af fötum, bækur, leikföng og 130.000 í peningum (sem ég má ekki leysa út fyrr en ég verð 18 ára hehe..).

 

Þar sem gestabókin gleymdist  gerðu mamma og pabbi bara lista yfir þá sem komu í skírnina mína og verður hann birtur hér fyrir neðan.

 

Þeir sem komu í skírnina mína:

Mamma

Pabbi

Rúnar Óskarsson

María Antonsdóttir

Ársæll Örn Kjartansson

Sesselja Magnúsdóttir

Erla Dröfn Rúnarsdóttir

Theódór Ragnar Gíslason

Óskar Kristinn Rúnarsson

Sigurður Rúnar Rúnarsson

Ásdís María Ársælsdóttir

Óskar Kristinn Ólafsson

Arnheiður Jónsdóttir

Anton Svanur Guðmundsson

Óla Sveinbjörg Jónsdóttir

Ásdís Ársælsdóttir

Svava Ársælsdóttir

María Hafsteinsdóttir (og Hringur bumbubúi)

Björn Ingimundarson

Magnús Ari Björnsson

Árný Jónína Guðmundsdóttir

Dögg Guðmundsdóttir

Rakel Helena Kristjánsdóttir

Vala Frímannsdóttir

Hrafnhildur Karla Jóndóttir

Nellý Pétursdóttir

Andri Þór Jónsson

Anna Lilja Eiríkdóttir

Gunnar Snorri Þorvarðarson

Hjördís Logadóttir

Jón Arnar Óskarsson

Jóna Guðbjörg Árnadóttir

Guðmundur Svanberg

Hulda Guðrún Jónasdóttir

Jón Sigurður Ingason

Hallur Örn Jónsson

Hlín Kristbergsdóttir

Elísabet Guðrún Jónsdóttir

Ebba Þorgeirsdóttir

Ólöf Hreiðarsdóttir

 

 

 

 

 

Flettingar í dag: 63
Gestir í dag: 9
Flettingar í gær: 13
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 45665
Samtals gestir: 13514
Tölur uppfærðar: 18.5.2024 06:56:47


Um mig

Nafn:

Silja María & Ársæll Örn

Afmælisdagur:

12. maí 2006 og 13. apríl 2009

Faðir:

Kjartan Ársælsson

Móðir:

Kristín Ósk Rúnarsdóttir

Um:

Draumabörn í alla staði

Tenglar