Ég byrjaði í aðlögun hjá Önnu dagmömmu þann 17. febrúar
2010. Hún býr í Vöðunum og er búin að vera dagmamma í mörg ár. Þá var ég 10 mánaða. Mamma sá um aðlögunina sem tók eina og hálfa
viku. Hún gekk sæmilega en ég grét alltaf á morgnanna þegar mamma fór.
Anna sagði reyndar við mömmu að ég hætti að gráta fljótlega eftir að hún
færi og því engar áhyggjur að hafa. Ég hef verið frekar lítið hjá Önnu
þar sem ég hef verið mikið og oft veikur en mér líður vel hjá henni og
borða vel. Þar eru líka átta aðrir krakkar þar sem Anna vinnur með
vinkonu sinni og erum við krakkarnir dugleg að leika saman.
Ég er búinn að fá pláss á leikskólanum Arnarsmára frá og með 27. september næstkomandi og hlakka ég mikið til að byrja þar. Ég er nefnilega mikill útikarl og nýt mín best í sandkassanum að moka.