e-ð finnst mér eins og ég hafi heyrt eina góða frú segja fyrir áramót að hún ætlaði að vera svo dugleg á nýju ári að setja inn myndir og fréttir, hefur mér kannski miseyrst ? ;0)
Annars vona ég að þið hafið það gott.
bkv úr kuldanum í olsó
Rakel H
20.11.2010 kl. 18:11
hæhæ ætlaði bara að kasta á ykkur kveðju, var að vonast að það væri e-ð nýtt í boði en greinilega mikið að gera á stóru heimili hehe
knús fra dk
Rakel H
28.8.2010 kl. 20:08
hæhæ og ég sem ætlaði að fara reka á eftir nýjum myndum, þá var bara löngu komin inn nokkur albúm :Þ
Æðislegar myndir að krúttkögglunum ykkar, búin að stækka svo mikið og orðin svo flott.
Vona þið hafið það rosa gott
bestu kveðjur frá herlev, knús.....
Rakel H
24.8.2010 kl. 22:12
Hæ sætu systkini!
Það er svo langt síðan ég skoðaði myndir af ykkur. Gaman að skoða svona mörg albúm í einu :)
Ársæll: Þú ert ekkert smá herralegur og flottur með nýju klippinguna og allar þessar tennur (öfund,öfund). Þú ert alltaf velkominn í heimsókn til mín að leika.
Saknaðarkveðja
Tinna María
Tinna María :)
19.2.2010 kl. 20:31
Halló!
Gaman að sjá allar myndirnar.
Ársæll orðinn ekkert smá stór og duglegur.
Og Silja... úfff.. alveg að smella í unglingspíu :)
Vona að mömmuhjartað hafi verið í gúddí seinustu daga og strákurinn staðið sig eins og hetja.
Kram á ykkur frá mosafaminu í DK
Anna Silla
15.2.2010 kl. 22:36
Æðislega flottar myndir. Ársæll orðinn ekkert smá stór ég verð samt að segja að hann er léttari heldur en Logi Þór var í 6 mánaðaskoðuninni hann var 8,2 kg!!
Böðum okkur í sólinni og erum að steikjast, kíktum inn til að kæla okkur og kíkja á prinsessurnar og senda kveðjur í leiðinni, knús og koss frá ömmu og hlakka til að koma í afmælið þitt snúllan mín
Voðalega ertu orðin stór og sæt stelpa. Alltaf gaman að kíkja á síðuna þína og sjá hvað þú ert að bralla.
kossar og knús Sara
Sara
20.11.2007 kl. 2:42
Æ er Silja litla búin að vera svona lasin. Vonandi er hún orðin góð núna. Bestu kveðjur til ykkar allra.
kv. Ásta (Valitor)
Ásta Björg
13.11.2007 kl. 14:53
Láttu þér líða betur..
Við gormarnir vonum að þér fari nú að líða betur svísipæ.
Við vorum sjálf að stíga upp úr veikindum þ.e. Kristín var með hlaupabóluna og Þórhallur hljóp bara frá henni :-)
Knús
Gormarnir
Hæ sæta frænka okkar, vorum að skoða nýju myndinar af þér og þú ert alltaf jafn sæt:) verðum svo að fara að hittast og leika okkur svolítð saman.......biðjum að heilsa mömmu og pabba:) kveðja, frænkurnar úr Árbænum
Ásdís Elva og Selma Sól
17.10.2007 kl. 19:53
hæ silja
rosalega er gaman að sjá myndirnar af þér og vá hvað þú ert dugleg í íþróttaskólanum. en hlakka til að fá þig á morgun í húsverkin :-)
bogga dagmamma
15.10.2007 kl. 22:05
Hæ sæta!
Held að það sé alveg kominn tími til að maður kvitti fyrir innlitið. Gaman að skoða myndirnar þínar. Þú varst rosalega dugleg í íþróttaskólanum og sundinu. Ert alger íþróttaálfur :)
Kveðja,
Hildur og Jón Ingi
Hæ hæ sæta skvísa, rosalega hefur verið gaman hjá þér í Danaveldi og ekkert smá flott í Tivoli og svo í dýragarði það hefur verið alveg geggjað gaman. Hlakka til að búa rétt hjá þér í kórunum, getum leikið hehe
kv Jónas Breki
Ég kíki oft hérna inn til ykkar. Alltaf gaman að fylgjast með fjölskyldunni í Perlukórnum. Til hamingju með nýja heimilið. Voðalega er gaman hvað Silja er mikil útistelpa og svona. Hafið það svo bara yndislegt í sumar.
Hæ hæ... mikið rosalega ertu sæt skvísa :) Það væri nú gaman að hitta þig einhvern daginn :) Þið Bóas mynduð örugglega geta leikið ykkur saman :)
Kv Eva og Bóas Máni
Hæ sæta skvísa!
Við vildum bara óska þér til hamingju með afmælið í gær :) Vonandi hefurðu notið dagsins í botn :)
Kveðja
Soffía, Saga Guðrún & Arney Vaka
Silja ekki svo lítil lengur, það er sko alveg rétt. Til hamingju með fallegu eyrnalokkana þína. Þú ert orðin svo stór og dugleg. Ertu farin að ganga eða hvað? Já, tíminn er svo sannarlega fljótur að líða.
Hæ hæ flotta stelpa langaði bara að kvitta hjá þér, þar sem ég kíki nú annað slagið á þig :) Hafðu það gott um páskana litla snúlla bestu kveðjur til mömmu þinnar og pabba.
Elsku litla Silja mín. Mikið finn ég til með þér að hafa verið svona veik. Það er svo erfitt þegar maður er svona lítill að vera lasinn. En það er frábært að þér er að batna og getur farið að leika þér á fullu á ný. Til hamingju með dagmömmuplássið. Það verður sko gaman fyrir þig að fara að tuskast á við lítil börn á þínum aldri.
Elsku litla sjarmatröll. Maður kemst alltaf í betra skap við að kíkja aðeins hérna inn. Það er greinilegt að þér líður vel og það geislar alveg hreint af þér lífsgleðin. Ég sé að mamma hefur verið að útskrifast og þú skilar kannski kveðju til hennar.
Rosalega ertu mikið krútt,
til hamingju með tönn númer 3 :-)
bið að heilsa mömmu þinni
Helena
Helena
4.1.2007 kl. 20:03
Heil og sæl litla fjölskylda,
var að kíkja á hana sætu frænku mína, hún er komin með tvær tennur!
Bestu nýarskveðjur,
hittumst heil,
Ágústa og co.
Ágústa
30.12.2006 kl. 22:07
Kvitt kvitt :-)
Hæ Silja María okkar,
Við gormarnir kýkjum oft á síðuna þína og okkur finnst þú vera voða sæt módel. Jólakortið er rosa flott og þökkum við fyrir það og jólagjafirnar okkar.
Gormakveðjur
Þ&K
Silja María er rosaleg í sundinu! Kveðjur til ykkar allra.
Katrín frænka og co. í Hollandi
12.10.2006 kl. 22:01
sæta sæta
Hæ sæta skvísa,
Rosa gaman að sjá myndirnar af þér úr sundinu - ekkert smá dugleg að kafa :)
Hulda og Gummi
29.9.2006 kl. 14:02
Hæ litla skotta :) Mikið eru myndirnar þínar flottar, mamma þín og pabbi eru ekkert smá dugleg að setja inn myndir :)
Hlökkum til að sjá þig í sundinu
Kv. Hanna, Ásta Margrét og Embla Guðlaug
Loksins fær maður að sjá þig, ég hafði ekki hugmynd um að það væri til síða handa þér. En Kjartan og Kristín, innilega til hamingju með prinsessuna ykkar. Hún er algjörg æði og ég er alveg dolfallin yfir myndunum af henni því hún er svo sæt. Vonandi fá þær liltu frænkur að hittast bráðlega. En hafið það gott og ég mun sko bæta ykkur á síðuna okkar:) En ef ykkur vantar lykilorðið hjá okkur látið okkur þá vita. Hlökkum til að sjá ykkur (vonandi sem fyrst) Kveðja, frænkurnar úr grafarholtinu:)
Vá það var nú bara tilviljun að ég rakst á þessa síðu, og auðvitað varð ég að kvitta. Til hamingju með litlu prinsessuna, vonandi hafið þið það gott. Bestu kveðjur, Benný og barnaskarinn ;)
Mundi loksins eftir að skrifa í gestabókina, kíki alltaf öðru hvoru á prinsessuna ykkar:o) Alltaf gaman að sjá skoða krúttið.
Kv. Dagmar (VISA)
Dagmar
9.7.2006 kl. 23:59
Hæ hó !
Halló Silja María, litla frænka.
Gaman að sjá allar fínu myndirnar af þér. Kíkjum á þig við næsta tækifæri.
Kær kveðja frá stóru frændum þínum, þeim Stanley Erni, Birni Stein og Styrmi Loga.
Kossar og knús.
Axel Örn
Axel Örn
7.7.2006 kl. 20:48
Halló
Innilegar hamingjuóskir með þessa yndislegu stúlku og þetta fallega nafn. Það vill svo skemmtilega til að við eigum sama afmælisdaginn ;) 12. maí! Gangi ykkur alveg rosalega vel í framtíðinni og farið vel með ykkur.
kveðja, Marlín (gömul vinkona Erlu) og fjölskylda á Flúðum
Kæru Kristín og Kjartan!
Innilega til hamingju með stúlkuna, hún er alveg gullfalleg og heitir svona fínu nafni!
Æðislega gaman að skoða myndirnar, get nú ekki neitað af það heyrist kling kling á ákveðnum stöðum á manni! hehe :)
Kveðja, Anna Sig.
Innilega til hamingju með sæta nafnið. Krúttlegar myndir, og rosalega sæt stelpa, enda ekki langt að sækja það. Fæ svo vonandi að sjá dömuna með berum augum:) bráðlega. Gangi ykkur vel
Tinna Geislapæja
6.6.2006 kl. 21:18
Fallegust:)
Til hamingju með fallega nafnið þitt Silja María:) Þú ert alveg guðdómlega falleg. Alveg fullkomin!! Hlakka til að sjá þig í eigin persónu;) Kveðjur til pabba þíns og mömmu.....
Æðislegt að það sé komin myndasíða, nú og blogg líka :) Vorum búin að sjá mynd af þér á síðunni hans pabba þíns og þú ert algjör prinsessa. Hlökkum til að sjá þig í eigin persónu.
Vid erum komin til Løkken og allt gekk vel. Vedrid er f'innt.
Allir bydja ad heilsa.
amma Maja
2.6.2006 kl. 15:31
Mikið er hún falleg og dafnar vel.
Guð gefi henni bjarta og fallega framtíð. Þakka innilega fyrir að hafa fengið að vera með henni svona lítilli. Hún er yndisleg.
Amma Dídí
Amma Dídí
2.6.2006 kl. 14:03
Ég vildi bara óska þér til hamingju með þetta æðislega nafn og foreldrum þínum til hamingju með sætu stelpuna sína.
Halldóra
2.6.2006 kl. 9:11
Til hamingju
með nafngjöf og skírn. Þú ert svo ægilega fín lítil stelpa. Hlakka til þegar pabbi kemur með þig í vinnuna.
Ásta Björg
2.6.2006 kl. 2:57
Hæ elsku litla sæta Silja María!
Rosa gaman að skoða myndirnar þínar, þú hefur mannast svo mikið þessa fáu daga sem við höfum verið í burtu. Hlökkum rosalega til að koma til þín þegar við komum heim. Hafðu það gott á meðan:)
Kv. Herborg og co
Herborg
1.6.2006 kl. 23:02
Halló litla fjölskylda :)
Við vildum bara senda ykkur öllum hamingjuóskir. Hún er alveg æðisleg litla snúllan! Það verður gaman að fylgjast með henni hérna :)
Kveðja
Soffía & Saga Guðrún
Kristín og Kjartan hamingju með dótturina og fallega nafnið. Maja amma og Rúnar afi, til hamingju líka :)
Kveðja úr Garðabænum
Helen Hreiðarsdóttir
1.6.2006 kl. 15:19
Hjartanlega til hamingju með þetta fallega nafn:)
Kærar kveðjur úr Álfkonuhvarfinu
Arnór Steinn og Berglind Björt
1.6.2006 kl. 11:05
Hamingjuóskir
Til hamingju með nafnið.
Kv. Ólöf
Ólöf Hreiðarsdóttir
29.5.2006 kl. 16:42
Heil og sæl
Til hamingju með lilluna! Hlakka til að sjá hana í sumar.
Bestu kveðjur frá Amsterdam
Ágústa
27.5.2006 kl. 15:03
Til hamingju með prinsessuna. Alger skvísa:)
kveðja frá Danmörku
Snorri
Snorri Valur
26.5.2006 kl. 22:59
Til hamingju með síðuna
Hæ litla fjölskylda. Til hamingju með nýju síðuna. Það var rosa gaman að koma og kíkja á ykkur og sjá litlu prinsessuna. Frábært að hitta hana vakandi :) Bíð svo spennt eftir nafninu :)
Anna Lilja
26.5.2006 kl. 17:31
Eftir mikla umhugsun er daman komin með blogg. Var lengi að melta þetta mál! Vildi bara lata ykkur vita, set kannski inn myndir úr ferðinni:)
Gaman að skoða myndirnar þínar:) Sjáumst þegar við komum til baka.
Knús
Herborg og Inga Bríet
Herborg
26.5.2006 kl. 10:16
Til lukku !!!!
Með síðuna, lífið og tilveruna litla snót !!
Bestu kveðjur
Sif
25.5.2006 kl. 17:36
Snúllhildur
Velkomin í hóp okkar Ofurprinsessa:) Frábært að eiga svona granna í Álfkonuhvarfi sem senda kveðjur frá íbúum þar:)
Hlakka voða mikið til að sjá þig næst, læt mömmu vita á hverjum morgni hvar þú átt heima (keyrum alltaf fram hjá ykkur á leiðinni í leikskólann)
Hafið það rosa gott
prinsessukveðjur
Andrea Ösp, mamma og pabbi
ohh hún er svo mannaleg og sæt, og bara með alveg fullt af svipbrigðum hehe, fannst æði myndin nr 16 eftir 1.baðið og það hehe
Rakel
24.5.2006 kl. 17:48
Sætust!!
Hún er sko algjör prinsessa.
Til hamningju með síðuna, og verið duglega að setja inn myndir. ;)
Hjördís
Hjördís
24.5.2006 kl. 16:53
Sæta skvísa
Til hamingju með þessa fínu síðu! Maður verður regluglegur gestur hér inni :) Hlakka til að hitta þig aftur, vonandi verður þú vakandi þá svo ég geti nú knúsað þig :)
Þú ert algjör draumur lilla litla, Alltaf sofandi þegar ég kem í heimsókn ;o) heldur svo bara vöku fyrir mömmu og pabba á nóttunni, kannski ég ætti bara að kíkja þá?
Erla
24.5.2006 kl. 11:16
Til hamningju með síðuna :)
Gummi
24.5.2006 kl. 11:11
Sæta skvísa
Til hamingju með síðuna, hlakka til að fylgjast með litlu skvísunni : )
Hulda
Hulda Guðrún
24.5.2006 kl. 10:41
Æðisleg skvísa
Enn og aftur til hamingju með þessa yndislegu stelpu. Við hlökkum til að fylgjast með ykkur hérna á nýju síðunni:)
Bestu kveðjur, Erna, Leifur, Arnór Steinn og Berglind Björt
Álfkonuhvarfsbúar
24.5.2006 kl. 10:01
Til hamingju
Til hamingju með nýju síðunna.
Árný
24.5.2006 kl. 9:50
Fallegar myndir og flott síða
Til hamingju með síðuna. Allar prinsessur verða að eiga heimasíðu og þessi litla snót er sannarlega prinsessa.
Ásta Björg
24.5.2006 kl. 9:06
Sæta sæta sæta
Hæ og til hamingju með síðuna. Æðislegar myndir. Var ekki viss um hverjum prinsessan líktist þegar ég fékk að máta hana, en ég er ekki frá því að Erla frænka eigi svoldið í henni ;)
Elsku Kristín og Kjartan innilega til hamingju með prinsessuna!
Anna Silla.