Við erum Silja María & Ársæll Örn Kjartansbörn


Blogg

Hér geturðu fylgst með okkur systkinunum í máli og myndum :o)

20.10.2008

Nýjar myndir :)


Loksins eru komnar inn nýjar myndir. Myndaalbúmin eru samt í einhverju rugli og koma ekki í röð. Einhverra hluta vegna kemur nýjasta albúmið núna aftast og er því í flokki "myndir frá 2008" á síðu 4.

Endilega kíkið ;O)


Skrifað 20.10.2008 kl. 10:03 af Kristín

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

9.10.2008

Enskuslettur...


Um daginn þegar við vorum að kveðja á leikskólanum og ég spyr Silju hvort hún ætli ekki að segja bless, þá snýr hún sér að deildarstjóranum og segir "good bye" hehehe...
Svo í síðustu viku vorum við heima hjá ömmu Maju og afa Rúnari í nýja húsinu og allir voru að klæða sig í útifötin og fara út að borða. Silja var eitthvað orðin leið á því að bíða og kallaði "lets go".
Í gær var ég að gefa henni brauð með kæfu og þegar ég rétti henni brauðið og segi gjörðu svo vel þá segir hún við mig "thank you mamma mín". Við höldum að þetta komi algjörlega frá Dóru landkönnuði enda horfir hún mikið á þá þætti. Ótrúlegt hvað þau eru fljót að pikka svona upp og nota við rétt tækifæri emoticon


Skrifað 9.10.2008 kl. 17:09 af Kristín

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 23
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 32
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 153894
Samtals gestir: 51522
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 10:08:44